Hópurinn í sólskininu. Ljósm. tfk

Dimmiterað í FSN

Útskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Snæfellinga brugðu á leik í gær. Að þessu sinni skörtuðu nemendur íþróttabúningum í tilefni dagsins og því mátti sjá spræka íþróttagarpa víðsvegar um Grundarfjörð að leysa hinar ýmsu þrautir. Nemendur fengu svo að koma inn á kennarastofuna í ilmandi vöffluveislu hjá kennurum eins og hefð er fyrir. Útskriftin verður svo 22. maí næstkomandi í hátíðarsal skólans þar sem 17 nemendur munu setja upp húfurnar.

Dimmiterað í FSN - Skessuhorn