Náðu fjórða sæti á öldungamóti í blaki

Dagana 30. apríl til 2. maí sl. var Öldungamótið í blaki haldið á Akureyri. Kvennalið frá Akranesi tók þátt og náði þar fjórða sæti. Þessar stúlkur voru: Laima Linares Hurtado, Erna Björg Guðlaugsdóttir, Sigríður Helgadóttir, Unnur Tedda Þorgrímsdóttir, Karitas Ósk Ólafsdóttir, Esther Judith Steinsson og Margaret Unger. Þá kemur fram í tilkynningu frá hópnum að þrír hafi mætt til að hvetja liðið til dáða og voru það þau Anna Bjarnadóttir, Saidhbhe Emily Canning og Atli Freyr Þorvaldsson.

Náðu fjórða sæti á öldungamóti í blaki - Skessuhorn