Steinar Adolfsson bæjarstjóri á Akranesi og Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti Hvalfjarðarsveitar undirrituðu samninginn. Ljósm. mm

Hvalfjarðarsveit mun taka fullan þátt í rekstri Bókasafns Akraness

Í dag skrifuðu fulltrúar Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar undir samstarfssamning um rekstur Bókasafns Akraness. Safnið mun þar með jöfnum höndum þjóna einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit, en markmið samningsins er að veita íbúum Hvalfjarðarsveitar aðgengi að safnkosti og þjónustu safnsins. Í samningnum felst að Hvalfjarðarsveit mun greiða 10% af heildarrekstrarkostnaði safnsins auk 5% álags vegna umsýslukostnaðar. Samningurinn tekur gildi frá 1. janúar 2026 og er ótímabundinn.

Sveitarfélögin munu því standa sameiginlega að því að veita aðgang að fjölbreyttu safnefni og upplýsingum á mismunandi formi; efla menningar- og vísindastarfsemi, menntun, símenntun, atvinnulíf, íslenska tungu, ánægjulestur og upplýsingalæsi.

„Líkt og kunnugt er veitir Bókasafn Akraness metnaðarfulla þjónustu árið um kring, en samningurinn mun meðal annars tryggja að háskólanemar í Hvalfjarðarsveit fái aðgang að Svövusal allan sólarhringinn án endurgjalds, eldri borgarar og þeir sem ekki komast á safnið geta nýtt sér heimsendingu bóka með aðstoð starfsfólks Hvalfjarðarsveitar og nemendur í 4. bekk fá boð á safnkynningu. Þá verða kynningar á sumarlestri fyrir grunnskólanema, reglulegar leikskólaheimsóknir og jólasögustundir í boði fyrir íbúa beggja sveitarfélaga. Safnið býður einnig upp á listsýningar, fjölbreyttar smiðjur og menningarviðburði yfir árið. Í Heiðarborg verður komið upp aðstöðu til að skila bókum og börn geta dvalið á bókasafninu eftir skóla þar til frístundastarf hefst. Öll ný verkefni safnsins munu jafnframt ná til íbúa Hvalfjarðarsveitar,“ segir í tilkynningu. Þá segir að Akraneskaupstaður fagni samstarfinu sem tryggi betur rekstrargrundvöll safnsins og geri það að verkum að fleiri fái að njóta þeirrar starfsemi og metnaðarfullu þjónustu sem þar er í boði.

Að lokinni undirskrift var stillt upp í myndatöku með bæjar- og sveitarstjórnarfulltrúum sem mættir voru