Fréttir

true

Varðliðar umhverfisins koma úr Brekkubæjarskóla

Fyrirtækin Humble og Krónan hlutu í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári, þar sem þau hafi með eftirtektarverðum hætti dregið úr matarsóun á Íslandi. Við sama tækifæri voru nemendur tíunda bekkjar í Brekkubæjarskóla á Akranesi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Viðurkenninguna hljóta nemendur fyrir verkefnið og viðburðinn Fræðslusmakk,…Lesa meira

true

Matjurtagarðar við Heljarmýri

Sveitarfélagið Stykkishólmur hyggst bjóða íbúum að rækta kartöflur og grænmeti í matjurtagörðum við Heljarmýri í sumar. Matjurtagörðunum er ætlað að gefa íbúum kost á að rækta eigin grænmeti og njóta útivistar í nærumhverfinu. Reitirnir verða undirbúnir af sveitarfélaginu, en ræktendur sjá sjálfir um niðursetningu, umhirðu og uppskeru. Kartöflur þrífast best í sandblendnum moldarjarðvegi. Hann hlýnar…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing undirrituð um stækkun Garðavallar

Síðastliðinn mánudag undirrituðu forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis á Akranesi, bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar og bæjarstjóri viljayfirlýsingu um stækkun Garðavallar. Fram kom í fréttum í byrjun árs 2024 að Golfklúbburinn Leynir hafði þá óskað eftir samningi við Akraneskaupstað um landsvæði til stækkunar á Garðavelli úr 18 holum í 27 holur. Verkefnið hefur verið unnið síðan og er viljayfirlýsingin nú…Lesa meira

true

Kynntu vinnu sem nú er að hefjast við skipulag við Akratorg

Í gær fór fram kynningarfundar vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Akratorgs vegna Suðurgötu 57, gamla Landsbankahússins. Fjölmenni sýndi kynningunni áhuga og var bæjarþingsalurinn við Dalbraut 4 þétt setinn. Án undantekninga lýstu gestir ánægju sinni með að hreyfing væri loks komin á endurbætur hússins en undanfarin ár hefur ástand þess versnað. Á fundinum var farið yfir…Lesa meira

true

Halldóra Lóa ráðin aðstoðarskólameistari MB

Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarskólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar og mun hún hefja störf í haust. Tekur hún við starfinu af Lilju S. Ólafsdóttur sem hefur verið aðstoðarskólameistari frá stofnun skólans. Halldóra Lóa er Reykdælingur og býr í Reykholti ásamt fjölskyldu sinni. Hún er með PMD Stjórnendaþjálfun frá Háskólanum í Reykjavik, MA í…Lesa meira

true

Skagamenn steinlágu fyrir Víkingi R

ÍA og Víkingur Reykjavík mættust á Víkingsvellinum í fjórðu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær. Aðstæður voru ekki upp á sitt besta í rigningu og suðaustan vindi. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill og skiptust liðin á að sækja án þess að nokkuð markvert gerðist. Skagamenn voru þó nálægt því að skora eftir öflugt…Lesa meira

true

Bændur komnir með ruslapressur fyrir plastið

Gámar sem staðið hafa heima á bæjum í Eyja- og Miklaholtshreppi undir landbúnaðarplast eru komnir til ára sinna og orðnir nokkuð lúnir víðast hvar. Hreppsnefnd ákvað í vetur að fara þá leið að fjárfesta í plastpressum af Landstólpa fyrir bændur og aðra rekstraraðila í sveitarfélaginu. „Þettta er stórt umhverfismál fyrir okkur. Sveitarfélagið mun eiga pressurnar…Lesa meira

true

Pakkhúsið verður á ný opið allan ársins hring

Pakkhúsið í Ólafsvík á sér langa og merkilega sögu og nú hefst nýr rekstur í því undir nafninu Pakkhúsið Saga & Kaffi. Í byrjun aprílmánaðar skrifaði Snæfellsbær undir samning við Yevheniia Korchyha um leigu á Pakkhúsinu, en hún mun hefja rekstur í húsinu á næstu vikum og ætlar að halda áfram að bjóða fólk velkomið…Lesa meira

true

Ferðafélag Snæfellsness endurvakið

Boðað hefur verið til aðalfundar í Ferðafélagi Snæfellsness fimmtudagskvöldið 7. maí næstkomandi klukkan 20:00. Fundurinn verður haldinn að Hraunhálsi í Helgafellssveit. Félagið var upphaflega stofnað árið 2009. „Þetta hófst með því að ég hringdi í Gunnar í fyrri hluta mars síðastliðins og ljáði máls á því að endurvekja starfsemi félagsins,“ segir Guðmundur Rúnar Svansson, oft…Lesa meira

true

Hraðakstur viðvarandi vandamál

Í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að 97 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku. Þá voru 549 ökumenn að auki myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar var kærður fyrir vörslu á fíkniefnum. Fíkniefnin voru…Lesa meira