
Ferðafélag Snæfellsness endurvakið
Boðað hefur verið til aðalfundar í Ferðafélagi Snæfellsness fimmtudagskvöldið 7. maí næstkomandi klukkan 20:00. Fundurinn verður haldinn að Hraunhálsi í Helgafellssveit. Félagið var upphaflega stofnað árið 2009.
„Þetta hófst með því að ég hringdi í Gunnar í fyrri hluta mars síðastliðins og ljáði máls á því að endurvekja starfsemi félagsins,“ segir Guðmundur Rúnar Svansson, oft kenndur við Dalsmynni, í samtali við Skessuhorn. Þar á hann við Grundfirðinginn Gunnar Njálsson sem upphaflega stofnaði félagið og hefur verið formaður þess frá upphafi. Guðmundur hefur í nokkur ár verið fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands og séð um bæði krefjandi vetrarfjallgöngur og göngur á jökla í jöklalínu. „Gunnar flutti af Snæfellsnesi fyrir nokkrum árum og ég flutti aftur heim um svipað leyti. Við höfum verið að starfa að þessu í sameiningu síðustu vikur og það er kominn svolítill hópur með inn í þetta.“ Til viðbótar þeim Gunnari er 4-5 manna undirbúningshópur að skipuleggja aðalfundinn. Að sögn Guðmundar hafa nú þegar rúmlega 20 manns skráð sig í félagið og hann býst við að fleiri bætist við þegar nær dregur aðalfundi.
Stefnt er að því að félagið verði deild í Ferðafélagi Íslands (FÍ) líkt og Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs. Aðild að félaginu er þá jafnframt aðild að FÍ. „Við erum í sjálfu sér mikið að horfa til Ferðafélags Borgarfjarðar og að uppbygging starfsins verði með svipuðu sniði, þannig að til viðbótar stjórn verði starfandi bæði göngunefnd og stikunarnefnd. Ég sé ekki betur en að það hafi virkað vel þarna hinu megin við Hítarána.“ Guðmundur bætir því við að í Ferðafélagi Snæfellsness þurfi þó að horfa til þess við kjör stjórnar í henni verði fólk af öllu Snæfellsnesi.
Ferðafélagið gerði á sínum tíma gönguleiðakort á skilti fyrir Snæfellsnes og stikaði nokkrar gönguleiðir. Þannig er enn stikuð gönguleið þvert yfir Snæfellsnes milli Grundarfjarðar og Staðarsveitar um Arnardalsskarð. „Til viðbótar því að vera með góða göngudagskrá höfum við fullan hug á því að byggja upp gönguleiðir á Snæfellnesi. Þetta er ákveðin innviðauppbygging, hún er langtímaverkefni og þannig uppbygging þarf að vinnast í góðu samstarfi við sveitarfélög og landeigendur.“
Nánari upplýsingar munu birtast þegar nær dregur aðalfundi félagsins á facebook síðunni Ferðafélag Snæfellsness.
