
Þessi teikning er frá 2024 og sýnir svæðið sem hugsað er undir stækkun golfvallarins.
Viljayfirlýsing undirrituð um stækkun Garðavallar
Síðastliðinn mánudag undirrituðu forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis á Akranesi, bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar og bæjarstjóri viljayfirlýsingu um stækkun Garðavallar. Fram kom í fréttum í byrjun árs 2024 að Golfklúbburinn Leynir hafði þá óskað eftir samningi við Akraneskaupstað um landsvæði til stækkunar á Garðavelli úr 18 holum í 27 holur. Verkefnið hefur verið unnið síðan og er viljayfirlýsingin nú byggð á þeim hugmyndum.