
Frá Stykkishólmi. Ljósm. Sveitarfélagið Stykkishólmur
Matjurtagarðar við Heljarmýri
Sveitarfélagið Stykkishólmur hyggst bjóða íbúum að rækta kartöflur og grænmeti í matjurtagörðum við Heljarmýri í sumar. Matjurtagörðunum er ætlað að gefa íbúum kost á að rækta eigin grænmeti og njóta útivistar í nærumhverfinu. Reitirnir verða undirbúnir af sveitarfélaginu, en ræktendur sjá sjálfir um niðursetningu, umhirðu og uppskeru.