Eigendur Hrauns fasteignafélags ehf. standa hér við mynd af húsinu eins og það gæti litið út eftir hækkun og breytingar. F.v. Ívar Freyr Sturluson og Guðjón Pétur Lýðsson. Ljósm. mm

Kynntu vinnu sem nú er að hefjast við skipulag við Akratorg

Í gær fór fram kynningarfundar vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Akratorgs vegna Suðurgötu 57, gamla Landsbankahússins. Fjölmenni sýndi kynningunni áhuga og var bæjarþingsalurinn við Dalbraut 4 þétt setinn. Án undantekninga lýstu gestir ánægju sinni með að hreyfing væri loks komin á endurbætur hússins en undanfarin ár hefur ástand þess versnað. Á fundinum var farið yfir drög að breytingum sem gera þarf á deiliskipulagi reitsins og á húsinu sjálfu. Áformað er að starfrækja hótel á annarri og þriðju hæð hússins, veitingastaður verði á jarðhæð, ásamt veislusal á fjórðu hæð en sú hæð verður nýbygging. Í kjallara er ráðgert að hafa iðnaðareldhús og geymslur. Í fyrrum peningageymslu bankans er ráðgert að verði aðstaða til líkamsræktar. Gert er ráð fyrir að koma 22 rúmgóðum herbergjum fyrir á miðhæðunum og að um hágæða hótel verði að ræða. Að lokinni kynningu gafst fundargestum kostur á að spyrja nánar út í verkefnið og koma á framfæri ábendingum í aðdraganda nýs skipulags.