Hraðakstur viðvarandi vandamál

Í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að 97 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku. Þá voru 549 ökumenn að auki myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar var kærður fyrir vörslu á fíkniefnum. Fíkniefnin voru haldlögð af lögreglu til eyðingar og fær viðkomandi sekt. Sex voru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur. Sekt var lögð á eigendur sjö ökutækja þar sem þeim hafði verið lagt ólöglega. Níu voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur ökutækis. Einn var kærður fyrir að aka bifreið með útrunnin ökuréttindi og annar var kærður fyrir akstur án þess að hafa öðlast réttindi til aksturs bifreiða.