
Jón Oddsson bóndi í Kolviðarnesi er hér að taka við sinni pressu og með honum er Sigurbjörg oddviti.
Bændur komnir með ruslapressur fyrir plastið
Gámar sem staðið hafa heima á bæjum í Eyja- og Miklaholtshreppi undir landbúnaðarplast eru komnir til ára sinna og orðnir nokkuð lúnir víðast hvar. Hreppsnefnd ákvað í vetur að fara þá leið að fjárfesta í plastpressum af Landstólpa fyrir bændur og aðra rekstraraðila í sveitarfélaginu. „Þettta er stórt umhverfismál fyrir okkur. Sveitarfélagið mun eiga pressurnar heima á bæjunum en notendur hafa undirritað samkomulag við sveitarfélagið um að þær skuli standa innandyra allan ársins hring og notendur sjái um rekstur og viðhald. Gömlu gámarnir verða svo fjarlægðir af bæjum í framhaldinu,“ segir Sigurbjörg Ottesen oddviti í samtali við Skessuhorn. Afhendingin nýju ruslapressanna fór fram í mars á Breiðabliki, á hryssingslegum vordegi.