Pakkhúsið verður á ný opið allan ársins hring

Pakkhúsið í Ólafsvík á sér langa og merkilega sögu og nú hefst nýr rekstur í því undir nafninu Pakkhúsið Saga & Kaffi. Í byrjun aprílmánaðar skrifaði Snæfellsbær undir samning við Yevheniia Korchyha um leigu á Pakkhúsinu, en hún mun hefja rekstur í húsinu á næstu vikum og ætlar að halda áfram að bjóða fólk velkomið á safnið sem er á efri hæð hússins. Á fyrstu hæðinni verður saga samfélagsins jafnframt í hávegum höfð ásamt sölu kaffiveitinga og minjagripa.