Fréttir

true

Fengu sjóferð um sundin

Verkefnið Sjóferð um sundin hefur nú staðið yfir í þjár áratugi á vegum Faxaflóahafna og gefið um þremur tugum þúsunda grunnskólabarna í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðarsveit og Borgarnesi kost á að læra um staðarhætti og lífríki hafsins. Verkefnið í ár hófst í byrjun mánaðarins og hafa hundruðir grunnskólabarna nú þegar farið í siglingu um Faxaflóa með…Lesa meira

true

Skírnarbræður byggja og stunda búskap á samliggjandi jörðum

Rætt við Jónas á Síðumúlaveggjum og Guðmund Eggert á Gunnlaugsstöðum Það er kunnara en frá þurfi að segja að talsvert hefur skort upp á nýliðun í íslenskum landbúnaði. Atvinnuhættir hafa breyst hratt, búum fækkað en þau stækkað sem eftir eru. Þar kemur margt til. Kvóti til mjólkurframleiðslu hefur leitað í þau héruð sem aðgangur er…Lesa meira

true

Færðu skólanum sínum málverk að gjöf

Nemendur í myndmenntarvali í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum færðu skólanum nýlega myndir að gjöf. Það voru þau Bergdís Ingunn, Steinunn Vár, Þórdís Inga, Sunna Karen, Heiðdís Guðrún, Helga Laufey og Valgerður Karin sem unnu verkin í sameiningu. Þau afhentu Helgu skólastjóra og Ingu aðstoðarskólastjóra myndirnar, sem munu prýða skólann og gleðja bæði nemendur og starfsfólk.…Lesa meira

true

Varðliðar umhverfisins koma úr Brekkubæjarskóla

Fyrirtækin Humble og Krónan hlutu í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári, þar sem þau hafi með eftirtektarverðum hætti dregið úr matarsóun á Íslandi. Við sama tækifæri voru nemendur tíunda bekkjar í Brekkubæjarskóla á Akranesi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Viðurkenninguna hljóta nemendur fyrir verkefnið og viðburðinn Fræðslusmakk,…Lesa meira

true

Matjurtagarðar við Heljarmýri

Sveitarfélagið Stykkishólmur hyggst bjóða íbúum að rækta kartöflur og grænmeti í matjurtagörðum við Heljarmýri í sumar. Matjurtagörðunum er ætlað að gefa íbúum kost á að rækta eigin grænmeti og njóta útivistar í nærumhverfinu. Reitirnir verða undirbúnir af sveitarfélaginu, en ræktendur sjá sjálfir um niðursetningu, umhirðu og uppskeru. Kartöflur þrífast best í sandblendnum moldarjarðvegi. Hann hlýnar…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing undirrituð um stækkun Garðavallar

Síðastliðinn mánudag undirrituðu forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis á Akranesi, bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar og bæjarstjóri viljayfirlýsingu um stækkun Garðavallar. Fram kom í fréttum í byrjun árs 2024 að Golfklúbburinn Leynir hafði þá óskað eftir samningi við Akraneskaupstað um landsvæði til stækkunar á Garðavelli úr 18 holum í 27 holur. Verkefnið hefur verið unnið síðan og er viljayfirlýsingin nú…Lesa meira

true

Kynntu vinnu sem nú er að hefjast við skipulag við Akratorg

Í gær fór fram kynningarfundar vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Akratorgs vegna Suðurgötu 57, gamla Landsbankahússins. Fjölmenni sýndi kynningunni áhuga og var bæjarþingsalurinn við Dalbraut 4 þétt setinn. Án undantekninga lýstu gestir ánægju sinni með að hreyfing væri loks komin á endurbætur hússins en undanfarin ár hefur ástand þess versnað. Á fundinum var farið yfir…Lesa meira

true

Halldóra Lóa ráðin aðstoðarskólameistari MB

Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarskólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar og mun hún hefja störf í haust. Tekur hún við starfinu af Lilju S. Ólafsdóttur sem hefur verið aðstoðarskólameistari frá stofnun skólans. Halldóra Lóa er Reykdælingur og býr í Reykholti ásamt fjölskyldu sinni. Hún er með PMD Stjórnendaþjálfun frá Háskólanum í Reykjavik, MA í…Lesa meira

true

Skagamenn steinlágu fyrir Víkingi R

ÍA og Víkingur Reykjavík mættust á Víkingsvellinum í fjórðu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær. Aðstæður voru ekki upp á sitt besta í rigningu og suðaustan vindi. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill og skiptust liðin á að sækja án þess að nokkuð markvert gerðist. Skagamenn voru þó nálægt því að skora eftir öflugt…Lesa meira

true

Bændur komnir með ruslapressur fyrir plastið

Gámar sem staðið hafa heima á bæjum í Eyja- og Miklaholtshreppi undir landbúnaðarplast eru komnir til ára sinna og orðnir nokkuð lúnir víðast hvar. Hreppsnefnd ákvað í vetur að fara þá leið að fjárfesta í plastpressum af Landstólpa fyrir bændur og aðra rekstraraðila í sveitarfélaginu. „Þettta er stórt umhverfismál fyrir okkur. Sveitarfélagið mun eiga pressurnar…Lesa meira