Haldið til hafs. Ljósm. Arnar Valdimarsson

Fengu sjóferð um sundin

Verkefnið Sjóferð um sundin hefur nú staðið yfir í þjár áratugi á vegum Faxaflóahafna og gefið um þremur tugum þúsunda grunnskólabarna í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðarsveit og Borgarnesi kost á að læra um staðarhætti og lífríki hafsins. Verkefnið í ár hófst í byrjun mánaðarins og hafa hundruðir grunnskólabarna nú þegar farið í siglingu um Faxaflóa með leiðsögn og fræðslu. Síðasta siglingin í ár fer fram miðvikudaginn 6. maí.