
Færðu skólanum sínum málverk að gjöf
Nemendur í myndmenntarvali í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum færðu skólanum nýlega myndir að gjöf. Það voru þau Bergdís Ingunn, Steinunn Vár, Þórdís Inga, Sunna Karen, Heiðdís Guðrún, Helga Laufey og Valgerður Karin sem unnu verkin í sameiningu. Þau afhentu Helgu skólastjóra og Ingu aðstoðarskólastjóra myndirnar, sem munu prýða skólann og gleðja bæði nemendur og starfsfólk.