Fréttir

true

Víða eru viðvaranir í gildi vegna veðurs

Frá því um hádegi og til miðnættis í kvöld er gul viðvörun í gildi fyrir allt vestanvert landið, Vestfirði og Norðvesturland. Veðrið færist síðar sunnar á landið og viðvaranir taka gildi á suðausturlandi. Í hugleiðingum veðurfræðings Vegagerðarinnar segir: „Norðan hríð verður á Vestfjörðum í dag. Blint og erfið akstursskilyrði á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku eftir klukkan…Lesa meira

true

Sæmdartap Skagamanna í lokaleik sínum

Lið ÍA í Bónus deild karla í körfubolta tók í gær á móti Ármanni í lokaleik sínum í deildinni. Fyrir leikinn var ÍA fallið. Skagamenn ætluðu engu að síður að láta gestina hafa fyrir sigrinum. Ármann hafði þó yfirhöndina í tveimur fyrri leikhlutunum og leiddi í hálfleik með 60 stigum gegn 47. Í síðari hlutanum…Lesa meira

true

Sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ samþykktu framboðslista sinn

Sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ samþykktu í gær framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí nk. Var listinn samþykktur samhljóða á fundi í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum hlaut D-listinn fjóra bæjarfulltrúa af sjö og gefa þrír af þeim kost á sér áfram til forystu; þau Auður Kjartansdóttir, Júníana Björg Óttarsdóttir og Jón Bjarki Jónatansson. Bæjarstjóraefni…Lesa meira

true

Ferðast um matarslóðir Snæfellsness

Dagana 1. til 2. maí í vor býðst fólki að skrá sig í tveggja daga ferð undir heitinu Matarslóðir Snæfellsness. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Slow Food á Íslandi, Crisscross matarferða og Svæðisgarðsins á Snæfellsnesi. Fram kemur á síðu Slow Food að allt áhugafólk um matarmenningu og gómsæt matvæli er velkomið. Þá verður einnig hægt að kynnast…Lesa meira

true

Hágæða heilsuefling í Hofi í Reykholtsdal

Það er almennt ekki rétt að alhæfa um lífið og tilveruna, en hver vill ekki verða betri maður/kona í dag en í gær? Auka afkastagetu sína, efla styrk og hreyfifærni, bæta heilsuna og auka þannig lífsgæði sín almennt. Blaðamaður Skessuhorns fékk að sjá þetta raungerast þegar hann heimsótti „Hofið“ í Reykholtsdal í síðustu viku. Rætt…Lesa meira

true

Skíðasvæði Snæfellsness opnað eftir tveggja ára bið

Loksins tókst að opna skíðalyftuna í Grundarfirði í gær. Þá hafði snjóað nóg til að hægt væri að troða brekkurnar og opna lyftuna fyrir skíðaáhugafólk á svæðinu. Aðstæður til skíðaiðkunar voru með besta móti og var fjöldinn allur af skíðaiðkendum sem mættu og renndu sér í brekkunum. Frítt var í lyftuna þennan dag og var…Lesa meira

true

Matthildur og Birnir vinsælustu nöfnin á síðasta ári

Ef horft er á samanburð á milli ára má sjá að drengjanafnið Birnir tekur nú fyrsta sætið af Emil og Jökli þegar drengjanöfn eru skoðuð. Hástökkvari drengja á topp 10 listanum er Stefán, sem rýkur upp frá 47. sæti og í 9.–11. sæti. Hvað stúlkurnar varðar má sjá að Matthildur tekur fyrsta sætið af Aþenu…Lesa meira

true

Einn stærsti sólarhringur í sögu Grundarfjarðarhafnar – myndasyrpa

Miðvikudagurinn 25. mars fer líklega í sögubækurnar hjá Grundarfjarðarhöfn yfir landaðan afla á einum sólarhring. Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri man varla eftir öðru eins en hamagangurinn var mikill hjá starfsmönnum hafnarinnar, flutningabílstjórum, löndunargenginu og öllum þeim sem koma að þjónustu við skipin, allt frá olíudreifingarmönnum til starfsfólks í versluninni. Hvert skipið kom að landi á fætur…Lesa meira

true

Rætt hvort greiða ætti út hluta af eigin fé Sorpurðunar

Nokkrar umræður urðu á aðalfundi Sorpurðunar Vesturlands (SV) í gær um tillögu byggðarráðs Borgarbyggðar frá því í nóvember þess efnis að leggja til að eigendum fyrirtækisins, sveitarfélögum á Vesturlandi, verði greitt út uppsafnað eigið fé af starfseminni. Í ályktun byggðarráðs sagði: „Sorpurðun Vesturlands er öflugt og arðbært hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Vesturlandi og er…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu fyrir Þór

Kvennalið Snæfells í körfunni sótti Þór Akureyri heim í deildarleik í 1. deildinni á þriðjudaginn. Heimakonur reyndust sterkari, unnu þrjá af fjórum leikhlutum og að leik loknum var staðan 89-72 fyrir Þór. Atkvæðamest í liði Snæfells var Anna Soffía Lárusdóttir með 24 stig, Valdís Helga Alexandersdóttir gerði 13 og Haiden Denise Palmer 12. Hjá Þór…Lesa meira