
Víða eru viðvaranir í gildi vegna veðurs
Frá því um hádegi og til miðnættis í kvöld er gul viðvörun í gildi fyrir allt vestanvert landið, Vestfirði og Norðvesturland. Veðrið færist síðar sunnar á landið og viðvaranir taka gildi á suðausturlandi. Í hugleiðingum veðurfræðings Vegagerðarinnar segir: „Norðan hríð verður á Vestfjörðum í dag. Blint og erfið akstursskilyrði á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku eftir klukkan 15, og skömmu síðar einnig hríð á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Hvessir við fjöll frá Eyjafjöllum og austur á Djúpavog eftir kl 22 með hviðum staðbundið yfir 45 m/s, og hríð byrjar á Fagradal og á Fjarðarheiði á þeim tíma.“
Um spásvæðið Breiðafjörð segir á vef Veðurstofunnar: „Norðan og norðvestan 15-23 m/s með éljum og skafrenningi. Búast má við talsverðri snjókomu og lélegu skyggni. Samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.“