Sigrún Hjartardóttir stofnandi/eigandi Heilsuhofs og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir íþróttafræðingur og kennari. Texti og myndir: ÓHK

Hágæða heilsuefling í Hofi í Reykholtsdal

Það er almennt ekki rétt að alhæfa um lífið og tilveruna, en hver vill ekki verða betri maður/kona í dag en í gær? Auka afkastagetu sína, efla styrk og hreyfifærni, bæta heilsuna og auka þannig lífsgæði sín almennt. Blaðamaður Skessuhorns fékk að sjá þetta raungerast þegar hann heimsótti „Hofið“ í Reykholtsdal í síðustu viku. Rætt var við íþróttafræðinginn og kennarann Ingibjörgu Ingu Guðmundsdóttur í Brekkuhvammi. Inga, eins og hún er jafnan kölluð, hóf að kenna íþróttir og íþróttafræði við Héraðsskólann í Reykholti þar sem hún kenndi samfleytt í sjö ár eftir að hún útskrifaðist frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni 1976. Hún flutti til Tálknafjarðar 1983, þjálfaði og kenndi þar í 23 ár. Inga er holdgerfingur heilbrigðs lífsstíls og lifir fyrir það sem hún kennir. Kona eigi einhöm, með marga hatta. Meðal annars var Inga skólastjóri á Varmalandi í Borgarfirði frá 2007 en varð síðan skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar eftir að uppsveitarskólarnir á Varmalandi, Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri voru sameinaðir. Gegndi hún því starfi til haustsins 2018. Ástríðan fyrir starfinu, að miðla þekkingu sinni og færni, er sú sama og þegar blaðamaður Skessuhorns var nemandi við Héraðsskólann í Reykholti á árunum 1978-1980.