
Rætt hvort greiða ætti út hluta af eigin fé Sorpurðunar
Nokkrar umræður urðu á aðalfundi Sorpurðunar Vesturlands (SV) í gær um tillögu byggðarráðs Borgarbyggðar frá því í nóvember þess efnis að leggja til að eigendum fyrirtækisins, sveitarfélögum á Vesturlandi, verði greitt út uppsafnað eigið fé af starfseminni. Í ályktun byggðarráðs sagði: „Sorpurðun Vesturlands er öflugt og arðbært hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Vesturlandi og er eignarhlutur Borgarbyggðar 23,5%. Sjóðstreymi frá rekstri er sterkt, félagið skuldlaust og býr að stærri sjóðstöðu en útlit er fyrir að rekstur og fjárfestingar kalli á. Ef ekki liggur fyrir ákvörðun um fjárfestingar í rekstrinum í samræmi við stefnu þá beinir byggðarráð því til stjórnar Sorpurðunar Vesturlands að skoða að greiða umfram eigið fé til eigenda og/eða móta stefnu í þá veruna.“