Í haustblíðu við Búðir. Ljósm. mm

Ferðast um matarslóðir Snæfellsness

Dagana 1. til 2. maí í vor býðst fólki að skrá sig í tveggja daga ferð undir heitinu Matarslóðir Snæfellsness. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Slow Food á Íslandi, Crisscross matarferða og Svæðisgarðsins á Snæfellsnesi. Fram kemur á síðu Slow Food að allt áhugafólk um matarmenningu og gómsæt matvæli er velkomið. Þá verður einnig hægt að kynnast fólkinu á bak við hráefnið, þeim sem rækta, framleiða eða skapa með ástríðu og virðingu fyrir náttúru og staðbundinni menningu.