
Sæmdartap Skagamanna í lokaleik sínum
Lið ÍA í Bónus deild karla í körfubolta tók í gær á móti Ármanni í lokaleik sínum í deildinni. Fyrir leikinn var ÍA fallið. Skagamenn ætluðu engu að síður að láta gestina hafa fyrir sigrinum. Ármann hafði þó yfirhöndina í tveimur fyrri leikhlutunum og leiddi í hálfleik með 60 stigum gegn 47. Í síðari hlutanum létu Skagamenn gestina finna til tevatnsins og sigruðu í leikhlutunum með 22-20 og 34-27. Sá munur reyndist ekki nægur og fór Ármann með sigur af hólmi; 107 stigum gegn 103.