
Kap fremstur, svo Guðmundur SH, Jökull, Breki, Viðey og svo Kaldbakur aftast. Ljósmyndir: tfk
Einn stærsti sólarhringur í sögu Grundarfjarðarhafnar – myndasyrpa
Miðvikudagurinn 25. mars fer líklega í sögubækurnar hjá Grundarfjarðarhöfn yfir landaðan afla á einum sólarhring. Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri man varla eftir öðru eins en hamagangurinn var mikill hjá starfsmönnum hafnarinnar, flutningabílstjórum, löndunargenginu og öllum þeim sem koma að þjónustu við skipin, allt frá olíudreifingarmönnum til starfsfólks í versluninni. Hvert skipið kom að landi á fætur öðru en alls komu yfir 600 tonn á vigtina þennan sólarhringinn sem hlýtur að vera einhvers konar met í seinni tíð að minnsta kosti.