Þau skipa framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Snæfellsbæ. Ljósm. af

Sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ samþykktu framboðslista sinn

Sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ samþykktu í gær framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí nk. Var listinn samþykktur samhljóða á fundi í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum hlaut D-listinn fjóra bæjarfulltrúa af sjö og gefa þrír af þeim kost á sér áfram til forystu; þau Auður Kjartansdóttir, Júníana Björg Óttarsdóttir og Jón Bjarki Jónatansson.

Bæjarstjóraefni D-listans er Kristinn Jónasson núverandi bæjarstjóri í Snæfellsbæ, en Kristinn hefur verið bæjarstjóri síðan árið 1998 eða í 28 ár. Allan þann tíma hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft meirihluta í bæjarstjórn.

Listinn í heild er þannig:

Nr. 1 Auður Kjartansdóttir

Nr. 2 Eiríkur Böðvar Rúnarsson

Nr. 3 Jón Bjarki Jónatansson

Nr. 4 Júníana Björg Óttarsdóttir

Nr. 5 Jóhanna Jóhannesdóttir

Nr. 6 Urszula Zyskowska

Nr. 7 Illugi Jens Jónasson

Nr. 8 Sigrún Erla Sveinsdóttir

Nr. 9 Kristgeir Kristinsson

Nr. 10 Marinó Sigurjónsson

Nr. 11 Sara Egilsdóttir

Nr. 12 Styrmir Páll Sigurðarson

Nr. 13 Gunnar Ólafur Sigmarsson

Nr. 14 Sigrún Hafdís Guðmundsdóttir