Fréttir

true

Vitna óskað vegna íkveikju í bíl

Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir vitnum eða upplýsingum vegna íkveikju í bifreið við Smiðjuvelli á Akranesi mánudaginn 9. mars síðastliðinn. Atvikið átti sér stað um klukkan 22:00. „Nokkur umferð var um Smiðjuvelli og Kalmansbraut á þessum tíma og eru þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um málið beðnir um að vera í sambandi við lögreglu í…Lesa meira

true

Nýsköpunarvinnustofa framundan á Hvanneyri

Dagana 16.–17. mars nk. verður haldin tveggja daga nýsköpunarvinnustofa í Innovation Hub á Hvanneyri. „Við skoðum hvernig hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum og sprotafyrirtækjum. Til að gera vinnuna hagnýta munum við vinna með fimm íslensk sprotafyrirtæki sem dæmi, en þátttakendur eru hvattir til að koma með sínar eigin hugmyndir til að ræða og þróa. Hugmyndir:…Lesa meira

true

Reyna samruna á fjölmiðlamarkaði

Síminn hefur gengið til viðræðna við Sýn um kaup á Vísi, Bylgjunni og öðrum útvarpsstöðvum fyrirtækisins. Sjónvarpsstöðin Sýn, sem eitt sinn hét Stöð 2, fylgir ekki í kaupunum. Gengið er út frá því í viðræðunum að heildarvirði viðskiptanna nemi 5.250 milljónum króna. Heimildin greinir frá og vísar í tilkynningum fyrirtækjanna tveggja til Kauphallarinnar, en bæði…Lesa meira

true

Kerfið vinnur gegn markmiðum sínum

Ónotuð hjúkrunarrými á Brákarhlíð má rekja til brogaðs stjórnkerfis öldrunar- og heilbrigðismála Brýn þörf er fyrir hjúkrunarrýmum í landinu eins og margoft hefur komið fram í fjölmiðlum. Notað er orðið fráflæðisvandi vegna aldraðs fólks sem teppir stofur og ganga bráðadeildar sjúkrahússins. Fólk fær ekki inni á hjúkrunarheimilum. Sterkar vísbendingar eru um að vandamálið sé að…Lesa meira

true

Nú verður tíu tonna ásþungi á Vestfjarðavegi

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að á hádegi í dag, fimmtudaginn 12. mars, verður ásþungi færður upp í tíu tonn á Vestfjarðavegi nr. 60 frá Dalsmynni í Norðurárdal að vegamótum Djúpvegar 61 í Króksfirði. Síðustu tvo daga var ásþungi takmarkaður við 7 tonn.Lesa meira

true

Vilhjálmur kemur stjórnendum Bifrastar til aðstoðar

Stjórn Háskólans á Bifröst hefur ráðið Vilhjálm Egilsson, fyrrverandi rektor skólans, til að taka að sér hlutverk ráðgjafa stjórnar og rektors. Hann gegndi starfi rektors skólans árin 2013 til 2020. Í gær var hann á ferð á skólastaðnum ásamt Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur settum rektor. „Við Ólína könnuðum ástand skólabygginganna á Bifröst og funduðum með okkar…Lesa meira

true

Eldsneytisverð tuttugu krónum of hátt vegna sögulegrar álagningar

„Íslensku olíufélögin eru nær fjórfalt líklegri til að skila verðhækkunum til neytenda en verðlækkunum og álagning á bensín hefur verið sögulega há undanfarið. Eldsneytisverð gæti verið um 20 krónum lægra ef olíufélögin færðu álagningu að langtímameðaltalinu.“ Þetta er megin inntak í nýrri greiningu Visku stéttarfélags. Félagið hvetur stjórnvöld til að þrýsta á olíufélögin til að…Lesa meira

true

Færri komust að en vildu á Kútmagakvöld

Árlegt kútmagakvöld var haldið í Grundarfirði um liðna helgi. Kvöldið er til fjáröflunar og haldið af Lionsklúbbi Grundarfjarðar. Að þessu sinni var safnað fyrir nýju þaki á Grundarfjarðarkirkju en einnig til áframhaldandi uppbyggingar á skíðasvæði Snæfellinga. Á borðum var ýmis konar fiskmeti auk kútmaganna sjálfra. Herramannsmatur enda var uppselt á viðburðinn. Gunnar Garðarsson, Ágúst Jónsson…Lesa meira

true

Af örorku í blómlegan bisniss

Helga Magnea Birkisdóttir slasaðist í bílslysi á þrítugsaldri og var metin 75 prósent öryrki. Rúmlega fertug reif hún sig upp, fór í skóla og fór að reka lítið kaffihús á Hellnum á Snæfellsnesi, umkringd stórkostlegri náttúrufegurð. Helga Magnea og maður hennar reka í dag arðvænlegt fyrirtæki sem fékk viðurkenningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins fyrir að vera…Lesa meira

true

Ferðafólki bjargað úr vatnselg

Í hádeginu í dag var björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi boðuð út vegna ferðafólks sem hafði lent út af veginum um Snæfellsnes, rétt austan Stykkishólms, og bíllinn farið hálfur á kaf í vatn. Fólkið sá sitt ráð vænst að klifra upp á þak bílsins og þar sat það þegar björgunarsveitin kom á vettvang og náði því…Lesa meira