Reyna samruna á fjölmiðlamarkaði

Síminn hefur gengið til viðræðna við Sýn um kaup á Vísi, Bylgjunni og öðrum útvarpsstöðvum fyrirtækisins. Sjónvarpsstöðin Sýn, sem eitt sinn hét Stöð 2, fylgir ekki í kaupunum. Gengið er út frá því í viðræðunum að heildarvirði viðskiptanna nemi 5.250 milljónum króna. Heimildin greinir frá og vísar í tilkynningum fyrirtækjanna tveggja til Kauphallarinnar, en bæði félög eru skráð á markað. „Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal,“ segir þar. Niðurstaðan um hvort af verður kaupunum eða ekki veltur á áreiðanleikakönnun, samkomulagi um endanlegan kaupsamning, samþykkt stjórna beggja fyrirtækja og opinberra eftirlitsaðila.