
Helga Magnea segir að ekki í sínum villtustu draumum hafi hún séð fyrir sér lífið eins og það þróaðist eftir að hún fór út í reksturinn á Arnarstapa. Hér er hún með nýbakaða hjónabandssælu. Ljósm. úr einkasafni. Texti: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Af örorku í blómlegan bisniss
Helga Magnea Birkisdóttir slasaðist í bílslysi á þrítugsaldri og var metin 75 prósent öryrki. Rúmlega fertug reif hún sig upp, fór í skóla og fór að reka lítið kaffihús á Hellnum á Snæfellsnesi, umkringd stórkostlegri náttúrufegurð. Helga Magnea og maður hennar reka í dag arðvænlegt fyrirtæki sem fékk viðurkenningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins fyrir að vera fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri. Það er nú auglýst til sölu. Blaðamaður Skessuhorns nær af henni tali klukkan 9 að morgni en þá er hún búin að vera að vinna í tæpa tvo tíma og blés ekki úr nös. Hún er búin að setja upp súpu, hræra í orlydeig fyrir fisk, undirbúa sósur og hnoða brauðdeig. „Það er aldrei dauður tími hér.“