
Mynd úr safni Vegagerðarinnar sýnir slitlagsskemmdir við Gljúfurá í Borgarfirði.
Nú verður tíu tonna ásþungi á Vestfjarðavegi
Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að á hádegi í dag, fimmtudaginn 12. mars, verður ásþungi færður upp í tíu tonn á Vestfjarðavegi nr. 60 frá Dalsmynni í Norðurárdal að vegamótum Djúpvegar 61 í Króksfirði. Síðustu tvo daga var ásþungi takmarkaður við 7 tonn.