Vilhjálmur Egilsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir heimsóttu fyrrum háskólaþorp í gær. Ljósm. FB

Vilhjálmur kemur stjórnendum Bifrastar til aðstoðar

Stjórn Háskólans á Bifröst hefur ráðið Vilhjálm Egilsson, fyrrverandi rektor skólans, til að taka að sér hlutverk ráðgjafa stjórnar og rektors. Hann gegndi starfi rektors skólans árin 2013 til 2020. Í gær var hann á ferð á skólastaðnum ásamt Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur settum rektor. „Við Ólína könnuðum ástand skólabygginganna á Bifröst og funduðum með okkar fólki á starfsstöðinni á Hvanneyri. Það var gott að hitta fyrrum samstarfsmenn aftur og kynnast nýjum. Ég skynjaði huginn hjá fólkinu og sá Bifrastarglampann í augum minna gömlu vina,“ sagði Vilhjálmur að heimsókn lokinni.