Gunnar, Ágúst og Anna Kristín leggja lokahönd á veisluborðið. Ljósm. tfk

Færri komust að en vildu á Kútmagakvöld

Árlegt kútmagakvöld var haldið í Grundarfirði um liðna helgi. Kvöldið er til fjáröflunar og haldið af Lionsklúbbi Grundarfjarðar. Að þessu sinni var safnað fyrir nýju þaki á Grundarfjarðarkirkju en einnig til áframhaldandi uppbyggingar á skíðasvæði Snæfellinga. Á borðum var ýmis konar fiskmeti auk kútmaganna sjálfra. Herramannsmatur enda var uppselt á viðburðinn. Gunnar Garðarsson, Ágúst Jónsson og Anna Kristín Magnúsdóttir eru hér að leggja lokahönd á veisluborðið. Sjá einnig myndasyrpu í Skessuhorni vikunnar.