Við eldsneytisdælur Costco við Kauptún í Garðabæ. Á árunum 2014-2017 hafði innreið Costco á eldsneytismarkað sitt að segja og olíufélögin neyddust til að skila verðlækkunum á bensíni út í verðlagið. Minnir það á mikilvægi virkrar samkeppni fyrir hag íslenskra heimila. Ljósm. mm

Eldsneytisverð tuttugu krónum of hátt vegna sögulegrar álagningar

„Íslensku olíufélögin eru nær fjórfalt líklegri til að skila verðhækkunum til neytenda en verðlækkunum og álagning á bensín hefur verið sögulega há undanfarið. Eldsneytisverð gæti verið um 20 krónum lægra ef olíufélögin færðu álagningu að langtímameðaltalinu.“ Þetta er megin inntak í nýrri greiningu Visku stéttarfélags. Félagið hvetur stjórnvöld til að þrýsta á olíufélögin til að hlífa almenningi við áhrifum Íransstríðsins með lægri álagningu.