
Svipmynd af vettvangi fyrr í dag. Ljósm. Landsbjörg
Ferðafólki bjargað úr vatnselg
Í hádeginu í dag var björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi boðuð út vegna ferðafólks sem hafði lent út af veginum um Snæfellsnes, rétt austan Stykkishólms, og bíllinn farið hálfur á kaf í vatn. Fólkið sá sitt ráð vænst að klifra upp á þak bílsins og þar sat það þegar björgunarsveitin kom á vettvang og náði því af þakinu yfir í bíl sveitarinnar. Aðstæður voru þannig að mikið vatn hafði safnast við veginn svo rann inn á hann að stórum hluta. Þegar fólkið kom aðvífandi virðist sem bíll þeirra hafi flotið upp þegar þau ók í vatnið á veginum og ökumaðurinn misst stjórn á bílnum í kjölfarið.