
Það óhapp varð á loðnumiðunum seint í gærkvöldi að uppsjávarveiðiskip Brims, Svanur RE-45, fékk veiðarfæri í skrúfuna. Skipið var á loðnuveiðum skammt suðvestur af Snæfellsnesi. Loðnuskipið Víkingur AK tók Svan í tog en síðan tók dráttarbáturinn Magni við og dró Svan til Reykjavíkur. Samkvæmt MarineTraffík er Svanur nú í Sundahöfn.Lesa meira








