Bjarki Hjörleifsson varaformaður og Rósa Björk Brynjólfsdóttir ásamt fólki sem var kosið til trúnaðarstarfa innan VG á fundinum.

Varaformaður VG úr Stykkishólmi

Um eitthundrað manns sóttu landsfund Vinstri grænna á Selfossi um liðna helgi. Þar var Rósa Björk Brynjólfsdóttir kosinn formaður. Varaformaður flokksins kemur hinsvegar frá Stykkishólmi. „Ég sé fullt tilefni til að efla vinstrimennsku á Vesturlandi, það er ekki vanþörf á,“ segir nýi varaformaðurinn Bjarki Hjörleifsson sem sinnir innra starfi Vinstri grænna á kjörtímabilinu. Hann hefur víðtæka reynslu úr stjórnmálum, meðal annars sem sveitarstjórnarfulltrúi í Stykkishólmi, starfsmaður á skrifstofu og hjá þingflokki VG og sem aðstoðarmaður ráðherra.