
Söfnun hafin fyrir nýjum flygli í Dalabúð
Á þessu ári fagnar tónlistarskólinn í Dölum 50 ára afmæli sínu og á næsta ári verða 60 ár liðin frá vígslu félagsheimilisins Dalabúðar í Búðardal. Af því tilefni hefur verið hrundið af stað verkefninu: „Nýr flygill í Dalabúð,“ sem miðar að því að efla menningarstarf í Dalabyggð og styrkja stöðu Dalabúðar sem menningarhúss.
Frumkvæði að verkefninu hafði Sigurbjörg Kristínardóttir, fyrrverandi tónlistarkennari og organisti í Dalabyggð og víðar, en með henni í undirbúningshópi eru þau Kristín G Ólafsdóttir og Ólafur Rúnarsson. Markmið framtaksins er að safna fyrir nýjum flygli fyrir Dalabúð, en núverandi flygill er kominn til ára sinna.
Á undanförnum árum hafa orðið breytingar á starfsemi í Dalabúð. Með tilkomu nýs íþróttahúss í Búðardal hefur íþróttastarfsemi flust úr félagsheimilinu, sem skapar tækifæri til að þróa Dalabúð frekar sem menningarhús fyrir íbúa og gesti. Góð hljóðfæri eru mikilvæg forsenda fyrir fjölbreyttu tónlistar- og menningarstarfi, auk þess sem flygillinn verður nýttur í kennslu og tónleika á vegum tónlistarskólans.
Áætlaður kostnaður við flygil af þeirri stærð og gæðum sem stefnt er að því að kaupa er um fimm milljónir króna. Verkefnið hefur þegar hlotið 2,5 milljónir króna í styrki, og hefur hljóðfæri verið tekið frá tímabundið hjá Tónastöðinni á meðan unnið er að fjármögnun þess.
Öll vinna við söfnunina er unnin í sjálfboðavinnu og á næstunni verða haldnir að minnsta kosti tvennir fjáröflunartónleikar þar sem listamenn með tengingu við Dalina gefa vinnu sína. Auk þess verður leitað til fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga um stuðning.
Þeir sem vilja leggja verkefninu lið eða fá frekari upplýsingar geta haft samband við Sigurbjörgu Kristínardóttur í síma 864-7772 eða með tölvupósti á sibbo52@gmail.com.
Framlög til verkefnisins má leggja inn á söfnunarreikning í samstarfi við sönghópinn Hljómbrot:
Kennitala: 420523-2030. Banki: 0133-15-13241.