
Daria verður að fá tækifæri segir sjúkrahúsforstjórinn
Hún verður auðvitað að fá tækifæri, segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans sem setti sig í samband við Dariu Peremot, háls- nef- og eyrnalækni frá Úkraínu eftir að hún greindi frá því í viðtali við Skessuhorn í síðustu viku að hún væri að vinna á veitingahúsi á Íslandi og fengi ekki tækifæri til að starfa sem læknir þrátt fyrir að hafa verið hér í fjögur ár og tekið próf í læknadeild Háskóla Íslands til að sanna þekkingu sina.
„Ég sá þetta viðtal og mér rann það til rifja af hverju hún hefði ekki fengið tækifæri til að nota menntun sína á Íslandi. Auðvitað vil ég reyna að skoða hennar mál en það er líka mjög mikilvægt að skoða þessi mál í heild sinni. Hvernig sé almennt haldið á málum gagnvart flóttafólki í hennar stöðu sem er með mjög dýrmæta menntun og reynslu. Það þarf að tryggja að það fái tækifæri.“
Ætlar að hitta Dariu
Runólfur hringdi í Dariu og ætlar að hitta hana til fara yfir með henni, hvaða viðbrögð hún hefur fengið við atvinnuumsóknum sínum. Hann segir sláandi að fólk sé látið taka slíkt próf og síðan skilið eftir í einskis manns landi og fái ekki tækifæri til að vinna þessa sex mánuði sem þarf til að það öðlist réttindi. „Við á Landspítalanum erum helsta menntastofnun landsins á þessu sviði og það þarf að fara ofan í saumana á þessu. Auðvitað eru margar hliðar á þessu. Prófið er eitt en það þarf að öðlast ákveðna klíníska færni og stundum er reynslutíminn of stuttur, til dæmis ef það eru tungumálaerfiðleikar eða mikill munur á hefðum og venjum í heilbrigðisþjónustu og hér og þar sem fólkið starfaði áður.
Þarf að fara vel yfir málið
Landspítalinn er einnig að taka á móti stórum hópum læknanema og nýútskrifaðra lækna á hverju ári og þeir þurfa þjálfun. Það hefur auðvitað forgang en hitt má ekki sitja á hakanum. Það þarf að gera okkur kleift að gera það. Þarna þarf að fara vel yfir málið og koma í veg fyrir að svona sé farið með fólk og dýrmæta menntun,“ segir Runólfur Pálsson.