Holtavörðuheiðarlína 1 á að vera 220 þúsund volta loftlína með tvöföldum leiðara, hér er tilgátumynd af Holtavörðuheiði. Ljósm. Landsnet

„Ég skil ekki að ungur og efnilegur maður vilji slíta sér út á þessu“

„Það er ótrúlegt lágt lagst að reyna að afnema lýðræðislega ferla og stjórnarskrárvarin réttindi til að verja hagsmuni stórfyrirtækja á kostnað fólks í sveitum landsins,“ segir Eiríkur Blöndal verkfræðingur og bóndi á Jaðri í Borgarfirði en hann er félagi í Hagsmunasamtökum landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 1.