Séra María Guðrúnar Ágústsdóttir prófastur á Vesturlandi og séra Hilda María Sigurðardóttir sóknarprestur í Stykkishólmi.

Yngsti prestur landsins var settur í embætti um helgina

„Ég hvet bara alla til að koma í kirkjuna, það verður tekið vel á móti öllum;“ segir séra Hilda María Sigurðardóttir í samtali við Skessuhorni. Hún var um helgina formlega sett inn í embætti sem prestur í Stykkishólmsprestakalli. Séra María Guðrúnar Ágústsdóttir prófastur í Reykholti stýrði innsetningarathöfninni sem var vel sótt en kirkjukórinn bauð upp á veglegar veitingar í lok athafnar.