Fréttir

true

Árekstur við Laxárbakka

Um klukkan 13 í dag varð árekstur tveggja bifreiða skammt frá Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Vesturlandi, staðfestir í samtali við fréttavef Ríkisútvarpsins að fjórir hafi verið fluttir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Ekki lágu fyrir upplýsingar um líðan fólksins. Veginum var lokað um stund vegna slyssins.Lesa meira

true

Davíð mun leiða lista Framsóknar í Borgarbyggð

Frestur til að skila inn framboðum í leiðtogakjöri hjá Framsóknarflokki í Borgarbyggð rann út á miðnætti sl. föstudagskvöld. Einungis eitt framboð barst, frá Davíð Sigurðssyni formanni byggðarráðs, sem undanfarið kjörtímabil hefur skipað annað sæti listans. Á félagsfundi í Framsóknarfélagi Borgarfjarðar og Mýrasýslu í næstu viku verður borin upp tillaga um að Davíð leiði listann fyrir…Lesa meira

true

Brýnir fyrir hesteigendum að tryggja aðgang að vatni

Guðlaugur Antonsson eftirlitsmaður hjá Matvælastofnun segir að dæmi séu um að útigangshross hafi í frostaköflum að undanförnu ekki haft nægan aðgang að vatni. Hann skrifar til félagsmanna í hmf. Borgfirðingi: „Ágætu félagar, því miður sýnist mér vera að raungerast það sem ég óttaðist. Það er að í einhverjum tilfellum hafi hesteigendur með hross á útigangi…Lesa meira

true

Eyja varð sænskur meistari – er nú í 5. sæti á heimslistanum í fimmþraut

Borgfirska frjálsíþróttakonan Eyja Gautadóttir frá Efri-Hrepp býr og þjálfar í Svíþjóð. Hún gerði sér lítið fyrir nýverið og varð sænskur meistari í langstökki í flokki 17 ára þegar hún stökk 7,52 metra. Að auki keppti hún til bronsverðlauna í þremur öðrum greinum; kúluvarpi, 400 m hlaupi  og 60 metra grindarhlaupi. Nýlega varð hún svo sænskur…Lesa meira

true

Snæfellskonur áttu ekki roð við Aþenu

Snæfell tók í gær á móti Aþenu í leik í 1. deild kvenna í körfubolta. Gestirnir byrjuðu betur og höfðu talverða yfirburði eftir fyrstu tvo leikhlutana; tuttugu stiga munur og markatalan 61-41 í hálfleik. Síðari tvo leikhlutana voru Snæfells konur þó með yfirhöndina, en það dugði engan veginn til. Leikurinn fór því 83-98 fyrir Aþenu.…Lesa meira

true

Víða snjóþekja og hálka á vegum

Nú er þæfingsfæri á Bröttubrekku en snjóþekja og éljagangur á Holtavörðuheiði, víða eru hálka eða hálkubletti. Í hugleiðingum Vegagerðarinnar frá í morgun segir að vetrarfærð er á landinu mest öllu og getur verið þung. „Þrátt fyrir minni vind í dag, sunnudag, en hefur verið síðustu tvo daga heldur áfram að snjóa drjúgt úr éljum og…Lesa meira

true

Lokamínúturnar reyndust Skagamönnum erfiðar

ÍR tók á móti ÍA á föstudaginn í Skógarseli í leik í Bónusdeild karla í körfu. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur og höfðu heimamenn í ÍR yfirhöndina í fyrsta leikhluta, en Skagamenn í öðrum. Í hálfleik var staðan 50:45 fyrir ÍA. Þriðji leikhluti var einnig Skagamanna sem unnu hann með 16 stigum gegn 21. En svo…Lesa meira

true

Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra

Árlegum vetrarleiðangri sjórannsókna á rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur lauk. febrúar eftir 15 daga á sjó. Aðalmarkmið leiðangursins var vöktun á umhverfisástandi hafsins við Ísland að vetrarlagi, en hann er einn af árstíðabundnum umhverfisvöktunarleiðöngrum stofnunarinnar sem hafa farið fram þrisvar til fjórum sinnum á ári síðan 1970. Slík langtímavöktun er nauðsynleg til að unnt sé að meta og skilja…Lesa meira

true

Skútan Esja baular á umhverfi sitt í Akraneshöfn

„Ég held að við séum flest á þeirri skoðun að við eigum að búa við frelsi til athafna – gera það sem okkur sýnist svo langt sem það nær og það truflar ekki annað fólk á einhvern hátt,“ skrifar útvarpsmaðurinn góðkunni Ólafur Páll Gunnarsson, íbúi á Akranesi í nýrri færslu á FB. Hann heldur áfram:…Lesa meira

true

Of dýrt að hafa snjóbræðslu undir Bröttugötu

Fram kemur í fundargerð byggðarráðs Borgarbyggðar í gær að í sumar stendur til að ráðast í endurbyggingu á Bröttugötu í Borgarnesi. Þá kemur fram að skoðað hafi verið að koma fyrir snjóbræðslu undir götunni samhliða endurbyggingu hennar. Kostnaðaráætlun vegna lagningar snjóbræðslukerfis og árlegan rekstrarkostnað þess var kynnt og kemur fram í bókun ráðsins að sökum…Lesa meira