
Hér er verið að hífa út mælibúnað úr rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur. Ljósm. Hafró
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Árlegum vetrarleiðangri sjórannsókna á rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur lauk. febrúar eftir 15 daga á sjó. Aðalmarkmið leiðangursins var vöktun á umhverfisástandi hafsins við Ísland að vetrarlagi, en hann er einn af árstíðabundnum umhverfisvöktunarleiðöngrum stofnunarinnar sem hafa farið fram þrisvar til fjórum sinnum á ári síðan 1970. Slík langtímavöktun er nauðsynleg til að unnt sé að meta og skilja árstíðabundinn breytileika, breytingar á milli ára og breytingar af völdum loftslags á umhverfi hafsins og vistkerfi þess.