Baulandi Esja í Akraneshöfn nú síðdegis í dag. Ljósm. mm

Skútan Esja baular á umhverfi sitt í Akraneshöfn

„Ég held að við séum flest á þeirri skoðun að við eigum að búa við frelsi til athafna – gera það sem okkur sýnist svo langt sem það nær og það truflar ekki annað fólk á einhvern hátt,“ skrifar útvarpsmaðurinn góðkunni Ólafur Páll Gunnarsson, íbúi á Akranesi í nýrri færslu á FB. Hann heldur áfram: „Snemma í vetur sá ég að á íbúasíðunni okkar hérna á Akranesi að fólk var að velta fyrir sér einkennilegu hljóði sem heyrðist stundum þegar fór að blása. Það voru allskyns tilgátur uppi; þetta kom alltaf af og til þegar veður versnaði og mér þótti þetta mjög sérstakt – eins og mörgum öðrum – og það er ónæði af þessu. Þetta er leiðindahljóð. Ég sá það svo á þessari sömu íbúasíðu einhvern tímann í vetur að það var búið að finna það út að þetta hljóð kæmi frá skútu sem liggur við Akraneshöfn. „Flott hugsaði ég,“ þá er þetta afgreitt,“ skrifar Óli Palli.

Hann heldur áfram og segir að veðrið í vetur sé búið að vera óvenju gott eins og allir vita en svo núna þegar fór að blása af suðvestri upphefst söngur skútunnar enn og aftur. „Mér skilst að mastur skútunnar sem er líkast til úr áli – virki í vindi eins og flauta eða pípa í orgeli. Skútan heitir Esja og er í eigu manns sem býr ekki í þessum bæ heldur einhverjum allt öðrum.“

Óli Palli segist þekkja fólk sem er búið að kvarta undan þessu við bæði Faxaflóahafnir sem hljóta að bera ábyrgð á veru skútunnar hér á Akranesi og Heilbrigðiseftirlit Vesturlands. „Fólki þar er vel kunnugt um þetta mál en samt er ekkert gert til að stoppa þetta. Ég fékk nágranna í heimsókn áðan sem segist ekki sofa fyrir þessu bauli – var t.d. svefnlaus síðustu nótt. Og svo hringdi í mig kona sem sagði mér að þessi sama skúta hafi legið í Reykjavíkurhöfn en það hafi truflað hótelgesti svo mikið að eiganda hafi verið gert að færa hana. Ég hef aðeins hennar orð fyrir því og bið fólk endilega um að leiðrétta mig ef þetta er bull. En þetta er alveg ótrúlega fyndið ef þetta er rétt – já það er „ves“ með þetta í borginni – förum bara með þetta á Akranes -það hlýtur að vera í lagi þar,“ skrifar Óli Palli og biðlar um leið til fjölmiðla að vekja máls á baulandi skútu í Akraneshöfn.

Ritstjóri Skessuhorns, sem er vanur að taka allskonar áskorunum, brá sér niður að Akraneshöfn, gekk á baulið og sá Esju liggjandi þar við bryggju. Látum Óla Palla eiga síðasta orðið: „Þetta er flott skúta – mig hefur alltaf dreymt um að eiga svona græju – en ég myndi ekki vilja eiga hana ef ég vissi að hún væri að stela svefni frá ókunnugu fólki.“

Ritstjórinn sem er greindur af heyrnafræðingi með tæplega hálfa heyrn getur staðfest ummæli Óla Palla, skútan flautar og tíðnin hækkar eftir því sem vindurinn eykst.