Fréttir

true

„Veit ekki hvað ég hef átt marga báta“

Rætt við Hjörleif Guðmundsson trillukarl og þúsundþjalasmið í Ólafsvík Hjörleif Guðmundsson þekkja flestir sem eiga smábáta í Snæfellsbæ og víðar um land. Hann hefur um margra ára skeið aðstoðað útgerðarmenn sem þurfa að láta laga báta sína svo sem að gera við eða gera upp vélar eða plasta báta, svo dæmi séu tekin. „Ég byrjaði…Lesa meira

true

Færa á fjalirnar sýninguna Hvar er draumurinn?

Stór hópur nemenda Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur undanfarnar vikur æft söngleikinn Hvar er draumurinn, eftir Höskuld Þór Jónsson. Sýnt verður í Bíóhöllinni á Akranesi. Hér er á ferðinni sprenghlægileg og hjartnæm sýning sem fjallar um ungmenni á tímamótum í lífinu; leitina að draumnum og þá staðreynd að lífið er ekki alltaf dans á rósum. Söngleikurinn er…Lesa meira

true

Háls,- nef- og eyrnalæknir að þjóna til borðs

Daria Peremot háls,- nef- og eyrnalæknir frá borginni Kharkiv í Úkraínu þjónar til borðs á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Hún hefur verið hér á landi í fjögur ár en ekki getað nýtt menntun sína þrátt fyrir að hafa tekið lokaárið í læknisfræði upp á nýtt í háskólanum. Daria hefur reynt að fá að starfa sem læknir…Lesa meira

true

Staðfestu í gær nýtt Aðalskipulag Borgarbyggðar

Skipulagsstofnun hefur nú staðfest Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2025. „Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022 ásamt síðari breytingum. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var í sveitarstjórn á sama fundi sveitarstjórnar,“ segir í tilkynningu Skipulagsstofnunar. Nýtt Aðalskipulag hefur því lögformlega tekið…Lesa meira

true

Börn í Snæfellsbæ standa efst á Vesturlandi í lesskilningi

Niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði munu verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra hefur nú gefið út. Jafnframt hafa niðurstöður lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár nú verið birtar í fyrsta sinn og eru þær birtar eftir sveitarfélögum. Fram kemur í upplýsingum frá ráðuneytinu að lesfimi er…Lesa meira

true

Veitur afþökkuðu tilboð um vatn úr landi Geldingaár

Vatnsskortur var á Akranesi undir lok febrúar vegna mikilla þurrka og með tilliti til væntanlegrar loðnuvertíðar. Sundlaug og íþróttahúsi var lokað tímabundið í Hvalfjarðarveit sem og náttúrulauginni Guðlaugu við Langasand á Akranesi. Borholur og vatnsréttindi í átta borholum í landi Geldingaár í Hvalfjarðarsveit stóðu Vatnsveitufélagi Hvalfjarðarsveitar og Veitum til boða í fyrrahaust gegn greiðslu á…Lesa meira

true

Vesturland er uppselt vegna sólmyrkvans

„Við vitum að það er gríðarlegur áhugi, öll gisting á Vesturlandi er uppbókuð, allir bílaleigubílar á landinu upppantaðir og erlendar ferðaskrifstofur eru í stöðugu sambandi,“ segir Margrét Björk Björnsdóttir fagstjóri Áfangastaða og markasstofu Vesturlands og verkefnisstjóri hjá SSV í samtali við Skessuhorn. Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta…Lesa meira

true

Borgarverk bauð lægst í endurnýjun lagna

Veitur stóðu nýverið fyrir útboði um að endurnýja lagnir undir Borgarfjarðarbrúnni og er um mjög svo krefjandi verkefni að ræða. Erfiðar vinnuaðstæður og mikil umferð er yfir brúnna. Borgarverk ehf. átti lægsta tilboðið í verkið og munu Veitur ganga til samninga við fyrirtækið. Fyrirtækið Stálorka var meðal bjóðenda í verkið eftir forskrift Veitna en fyrirtækið…Lesa meira

true

Styrktarbingó fyrir Lilju Dögg

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði stóð fyrir bingói 25. febrúar síðastliðinn á sal skólans. Allur ágóði af bingóinu rann til Lilju Daggar Gunnarsdóttur sem glímir við illvígt bráðahvítblæði. Lilja Dögg stundaði nám í FSN áður en hún veiktist og vildu samnemendur hennar reyna að hjálpa henni eins og þeir geta með þessu styrktarbingói. Afar góð…Lesa meira

true

Trausti sjálfkjörinn formaður BÍ

Á miðnætti lauk framboðsfresti í embætti formanns Bændasamtaka Íslands. Samkvæmt samþykktum Bændasamtakanna er formaður kosinn á tveggja ára fresti með rafrænni kosningu meðal allra félagsmanna. Sé einungis einn frambjóðandi til formanns þegar frestur til framboðs rennur út telst viðkomandi sjálfkjörinn. Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi í Austurhlíð var einn í framboði að þessu sinni og er því…Lesa meira