Færa á fjalirnar sýninguna Hvar er draumurinn?

Stór hópur nemenda Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur undanfarnar vikur æft söngleikinn Hvar er draumurinn, eftir Höskuld Þór Jónsson. Sýnt verður í Bíóhöllinni á Akranesi. Hér er á ferðinni sprenghlægileg og hjartnæm sýning sem fjallar um ungmenni á tímamótum í lífinu; leitina að draumnum og þá staðreynd að lífið er ekki alltaf dans á rósum. Söngleikurinn er í leikstjórn Einars Viðarssonar og er byggður á lögum hljómsveitarinnar Sálin hans Jóns míns. „Hvað er draumurinn? er sannkölluð gleðisprengja sem býður allt í senn upp á húmor, einlægni og frábæra smelli frá 90´s líkt og góð pulsa með öllu,“ segir í kynningu Melló, leiklistarklúbbs NFFA.

Frumsýning verður föstudaginn 6. mars klukkan 19 en næstu sýningar verða á sunnudag kl. 17, mánudag kl. 19, þriðjudag kl. 19, fimmtudag kl. 19 og föstudag kl. 19. Miðasala er á midix.is

Hulda Þórunn Ellertsdóttir (t.v.) og Íris Embla Andradóttir eru í forsvari fyrir Melló.

Þær Íris Embla Andradóttir og Hulda Þórunn Ellertsdóttir eru í forsvari fyrir Melló, leiklistarklúbbs NFFA. Þær komu við á ritstjórn Skessuhorns í dag og segja að æfingar á verkinu hafi byrjað strax eftir áramót og æft hafi verið stíft síðan. Byrjað var á samlestri í skólanum en undanfarið hefur æfingar verið í Bíóhöllinni. „Það eru 34 leikarar og dansarar sem koma fram í sýningunni en alls eru um fimmtíu sem koma að uppfærslunni,“ segja þær. Strax í haust var ákveðið að æfa þetta verk og voru þá skipaðir einstaklingar til að sjá um búninga, sviðsmynd, hár og förðun, markaðsmál og önnur verkefni sem fylgja uppfærslum sem þessum. „Það er mikill söngur og dans í sýningunni og við lofum að allir sem þekkja tónlist Sálarinnar fá mikið fyrir peninginn. Þetta verður dúndursýning,“ segja þær. Að lokum bæta þær við að ef aðsókn verður góð verður fleiri sýningum bætt við til viðbótar þeim sex sem nú hafa verið auglýstar.