Börn í Snæfellsbæ standa efst á Vesturlandi í lesskilningi

Niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði munu verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra hefur nú gefið út. Jafnframt hafa niðurstöður lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár nú verið birtar í fyrsta sinn og eru þær birtar eftir sveitarfélögum. Fram kemur í upplýsingum frá ráðuneytinu að lesfimi er mælingaraðferð á lestrarhraða grunnskólabarna og var þessi aðferð tekin í notkun árið 2016 en er nú hluti af Matsferli. Prófin eru lögð fyrir þrisvar á hverju skólaári; september, janúar og maí, og styðjast við þrjú viðmið þar sem 3. viðmið markar mestan lestrarhraða. Lágmarksviðmið er að nemendur nái a.m.k. 2. viðmiði. Á vef ráðuneytisins eru birtar niðurstöður úr september- og maímælingum.