
Þversnið af brúnni og lagnabrú úr trefjaplasti til hliðar. Myndin er skjáskot úr kynningarmyndbandi Stálorku.
Borgarverk bauð lægst í endurnýjun lagna
Veitur stóðu nýverið fyrir útboði um að endurnýja lagnir undir Borgarfjarðarbrúnni og er um mjög svo krefjandi verkefni að ræða. Erfiðar vinnuaðstæður og mikil umferð er yfir brúnna. Borgarverk ehf. átti lægsta tilboðið í verkið og munu Veitur ganga til samninga við fyrirtækið.