Þeir Kristian Sævarsson, Ellert Gauti Heiðarsson og Magni Blær Hafþórsson sáu um að moka út bingóspjöldum en alls fóru hátt í 200 bingóspjöld enda veglegir vinningar í boði. Ljósm. tfk

Styrktarbingó fyrir Lilju Dögg

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði stóð fyrir bingói 25. febrúar síðastliðinn á sal skólans. Allur ágóði af bingóinu rann til Lilju Daggar Gunnarsdóttur sem glímir við illvígt bráðahvítblæði. Lilja Dögg stundaði nám í FSN áður en hún veiktist og vildu samnemendur hennar reyna að hjálpa henni eins og þeir geta með þessu styrktarbingói. Afar góð mæting var og ljóst að hugur allra er hjá Lilju Dögg og fjölskyldu hennar í þeirri baráttu sem framundan er.