
Karlarkórinn Heiðbjört starfar á sunnanverðu Snæfellsnesi og á uppruna sinn í Breiðuvík. Fyrir höndum er söngferðalag til Slóvakíu og Tékklands í byrjun mars og er stíft æft vegna þess sem framundan er. Ferðin er til komin vegna tengsla kórstjórnandans Hólmfríðar Friðjónsdóttur við tónlistarfólk í Bratislava í Slóvakíu og einnig vegna persónulegra tengsla kórmeðlima við fólk…Lesa meira








