Flóttafólki á Bifröst fækkar milli ára

„Það er ekki gott fyrir neitt sveitarfélag að fimm prósent íbúanna séu flóttamenn og fjarri allri þjónustu og atvinnu,“ segir Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri í Borgarbyggð í samtali við Skessuhorn. Hann fagnar því að flóttafólki á Bifröst sé að fækka samkvæmt nýjustu tölum en í fyrra fluttu 47 íbúar frá Bifröst, bæði fjölskyldur, pör og einstaklingar, en á sama tíma kom þangað 31 nýr íbúi, þar af 22 sem fá fjárhagsaðstoð fra sveitarfélaginu. „Þessi fækkun kemur ekki á óvart því við höfum verið að halda betur utan um hópinn og skráningu hans og ýta á eftir virkni eins og kostur er,“ segir hann.