Eitt af nýju fjölbýlishúsunum er við Kveldúlfsgötu 30. Ljósm. gj

Óvenju mikið úrval íbúða til sölu í Borgarnesi

Segja má að óvenju margar íbúðir séu til sölu í Borgarnesi um þessar mundir. Er aðal ástæðan sú að þrjú nýbyggð fjölbýlishús eru komin á söluskrá. Eitt húsið er við Borgarbraut 55 og er það með 16 íbúðum. Við Borgarbraut 63 er hús með 12 íbúðum og við Kveldúlfsgötu 30 eru 15 íbúðir. Samtals gera þetta 43 íbúðir auk nýrra íbúða í gamla hluta Borgarness og annarra eigna sem þegar voru komnar á söluskrá.