Logi Sigurðsson og Heiðar Árni Baldursson. Ljósm. mm

Strákarnir efstir í aðalfundartvímenningi

Þriggja kvölda keppni í tvímenningi hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar, sem kennd var við aðalfund félagsins, lauk í gærkveldi. Þeir Logi Sigurðsson og Heiðar Árni Baldursson sigldu sigri í örugga höfn, fengu að meðaltali 58,07% skor. Í öðru sæti urðu Ingimundur Jónsson og Anna Heiða Baldursdóttir með 57,4% og þriðju urðu Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson með 56,2%. Næstu þrjú mánudagskvöld verður Góutvímenningur félagsins spilaður. Allir eru velkomnir og minnt á að spilamennska hefst kl. 19:30 í Logalandi.