Hópurinn á Nýp. Ljósm. aðsend/ ss

Úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs

Síðastliðinn föstudag fór fram úthlutunarhátíð þar sem styrkjum úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs var úthlutað í fimmta sinn. Viðburðurinn var haldinn að Nýp á Skarðsströnd. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir bæði samfélagseflandi verkefni og nýsköpun í Dalabyggð.  Til úthlutunar voru 20.825.000 krónur og fengu 29 verkefni styrk. „Fjölbreytni umsókna eykst frá ári til árs og margt spennandi í farvatninu. Verkefni sem styrkt hafa verið á undanförnum árum hafa glætt mannlíf og menningarlíf í Dalabyggð og verkefnin í ár boða spennandi tíma,“ segir í tilkynningu.