Samkomuhúsið fær hlutverk

Á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Stykkishólms 19. febrúar sl. voru lögð fram drög að samningi sveitarfélagsins og Aftanskins, félags eldri borgara í Stykkishólmi. Samningurinn snýst um afnot af Samkomuhúsinu við Aðalgötu 6, þar sem Eldfjallasafn Haraldar Sigurðssonar jarðfræðings var síðast til húsa. Í fundargerð bæjarráðsins kemur fram að samningurinn við Aftanskin sé í samræmi við áherslur fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins og miði að því að koma húsnæðinu í nothæft ástand og í samfélagslega notkun í samstarfi við Aftanskin. Ráðið vísaði ofangreindum samningi við Aftanskin til samþykktar í bæjarstjórn.